Sú samsetning ferðatengdrar þjónustu sem þér er boðin er pakkaferð í skilningi laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Þú nýtur því allra þeirra réttinda sem gilda um pakkaferðir. Sunshine Travel ber fulla ábyrgð á að pakkaferðin í heild sinni sé framkvæmd á réttan hátt.
Auk þess hefur Sunshine Travel lögbundna tryggingu til að endurgreiða greiðslur þínar og, ef flutningur er innifalinn í pakkaferðinni, tryggja heimflutning þinn ef fyrirtækið verður ógjaldfært.
Helstu réttindi samkvæmt lögunum
- Ferðamenn fá allar nauðsynlegar upplýsingar um pakkaferðina áður en þeir gera samning um hana.
- Ávallt ber a.m.k. einn þjónustuveitandi ábyrgð á að öll ferðatengd þjónusta sem fellur undir samninginn sé rétt framkvæmd.
- Ferðamenn fá neyðarsímanúmer eða upplýsingar um tengilið sem getur haft samband við skipuleggjanda eða ferðaskrifstofu.
- Ferðamenn geta framselt pakkaferðina til annars einstaklings, með hæfilegum fyrirvara og hugsanlega gegn viðbótarkostnaði.
- Verð pakkaferðarinnar má einungis hækka ef tiltekinn kostnaður hækkar (t.d. eldsneytisverð), ef það er sérstaklega tekið fram í samningnum og aldrei síðar en 20 dögum fyrir upphaf ferðar. Nemi hækkunin meira en 8% af verði ferðarinnar getur ferðamaður rift samningnum. Áskilji skipuleggjandi sér rétt til verðhækkunar á ferðamaður rétt á verðlækkun ef viðkomandi kostnaður lækkar.
- Ferðamenn geta rift samningnum án uppsagnargjalds og fengið allar greiðslur endurgreiddar ef meginþáttum pakkaferðarinnar, öðrum en verði, er breytt verulega. Aflýsi skipuleggjandi ferðinni áður en hún hefst eiga ferðamenn rétt á endurgreiðslu og eftir atvikum skaðabótum.
- Ferðamenn geta rift samningnum án uppsagnargjalds áður en ferð hefst ef óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður koma upp á áfangastað sem líklegt er að hafi veruleg áhrif á ferðina, t.d. alvarleg öryggisvandamál.
- Auk þess geta ferðamenn hvenær sem er áður en ferð hefst rift samningnum gegn hæfilegu og réttlætanlegu uppsagnargjaldi.
- Ef ekki er hægt að veita mikilvæga þætti pakkaferðarinnar eftir að hún er hafin skal bjóða ferðamanni aðra viðeigandi tilhögun án viðbótarkostnaðar. Ferðamaður getur rift samningnum án uppsagnargjalds ef þjónusta er ekki veitt í samræmi við samninginn, það hefur veruleg áhrif á ferðina og skipuleggjandi bætir ekki úr.
- Ferðamenn eiga rétt á verðlækkun og/eða skaðabótum ef ferðatengd þjónusta er ekki veitt eða ekki veitt á réttan hátt.
- Skipuleggjandi skal veita ferðamanni aðstoð lendi hann í erfiðleikum.
- Verði skipuleggjandi ógjaldfær verða greiðslur endurgreiddar. Verði hann ógjaldfær eftir að ferð hefst og flutningur er innifalinn er heimflutningur ferðamanna tryggður.
Lög nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun eru á althingi.is. Ferðamálastofa (ferdamalastofa.is) hefur eftirlit með tryggingum ferðaskrifstofa.